Álag ferðamennsku á náttúru Íslands

Í fyrirlestraröðinni Vísindi og grautur á miðvikudaginn mun Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, fjalla um álag ferðamennsku á náttúru Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 10:00 og fer fram í stofu 205 í Háskólanum á Hólum. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.

Hin ofurviðkvæma náttúra Íslands er hornsteinn vaxandi ferðaþjónustu, atvinnugreinar sem færir landsmönnum mestan erlendan gjaldeyrir. Álag á viðkvæma staði og ferðaleiðir  er víða of mikið og afleiðingin er tímabil stórfelldra skemmda á viðkvæmri náttúru landsins.

Það bíða fjölmörg og áríðandi verkefni  ef tryggja á framtíð þessarar mikilvægu atvinnugreinar og efla fagmennsku við slíkar úrbætur. Hve vel eru stjórnvöld, stofnanir og hinir ýmsu hagsmunaaðilar í stakk búin í að vernda gullgæs ferðaþjónustunnar, náttúru Íslands? Er litið á umhverfisáhrif ferðaþjónustunnar sem ferðamál en ekki umhverfismál?

Andrés Arnalds er fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins. Hann menntaður í landbúnaðarfræðum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og sérfræðingur í vistfræði beitilanda og landgræðslu frá ríkisháskólunum í Washington og Colorado í Bandaríkjunum. Hann er áhugamaður um útivist og hefur ferðast víða bæði innan lands og utan.

Fleiri fréttir