Aldan felldi en Verslunarmannafélagið samþykkti

Talningu atkvæða í kosningu um nýja kjarasamninga lauk hjá Öldunni stéttarfélagi í gærmorgun. Voru þær felldir með naumum meirihluta. Úrslit í kosningu Verslunarmannafélags Skagafjarðar um nýgerða kjarasamninga Landssambands íslenskra verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins liggja einnig fyrir og voru þeir samþykktir.

Á kjörskrá hjá Öldunni voru 618 félagsmenn og þar af skiluðu 142 félagsmenn inn atkvæði sínu eða 23%. Nei sögðu 51% en já sögðu 49%. Aðeins tvö atkvæði ráða úrslitum og sýnir það mikilvægi þess að menn greiði atkvæði, en á vefsíðu félagsins furða menn sig á slakri kjörsókn í ljósi þess hve umdeildir samningarnir hafa verið. Kjörsókn var heldur minni en þegar síðast voru greidd atkvæði um samning við SA, árið 2011, en þá var hún 27%.

Niðurstaða þýðir að launakjör haldast óbreytt hjá félagsmönnum því þeir munu áfram starfa samkvæmt eldri kjarasamningi þar til nýjum kjarasamningi hefur verið náð við SA og hann samþykktur af félagsmönnum í póstatkvæðagreiðslu. /KSE

Á kjörskrá hjá Verslunarmannafélagi Skagafjarðar  voru 166 og greiddu 20 atkvæði sem er 12% kjörsókn

Fleiri fréttir