Alexandra með nýtt tónlistarmyndband
Alexandra Chernyshova gaf út geisladiskinn „Aðeins þú“ í vor og fylgdi hann Ljósmyndabókinni „Ljós og náttúra Skagafjarðar“.
Diskurinn inniheldur tíu lög, þar á meðal tvö frumsamin.
Tónlistarmyndbandið sem tekið var upp í Skagafirði af laginu „Please go“ eftir Alexöndru Chernyshovu má sjá hér.
Ljósmyndabókin „Ljós og náttúra Skagafjarðar verður svo kynnt með ljósmyndasýningu á Ljósanótt næstu helgi í Reykjanesbæ.