Álfheiður Freyja nýr skólastjóri Varmahlíðarskóla

Ráðið hefur verið í stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla og varð Álfheiður Freyja Friðbjarnardóttir fyrir valinu. Álfheiður Freyja gegndi stöðu skólastjóra grunnskólans á Djúpavogi um árabil.

Hún hefur jafnframt gegnt stöðu deildarstjóra í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Hún var deildarstjóri í Árbæjarskóla og hafði umsjón með sérkennslu, deild seinfærra barna og bráðgerra barna. Síðast liðið ár hefur Álfheiður Freyja verið deildarstjóri í Norðlingaskóla, haft þar yfirumsjón með stoðþjónustu skólans og sinnt fjölmörgum öðrum verkefnum. Álfheiður Freyja er með meistaragráðu í lýðheilsuvísindum og hefur jafnframt reynslu af rekstri fyrirtækja.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir