Ók bílnum á allt að 193 km hraða þegar slysið varð
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt ungan mann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir glæfraakstur á Siglufjarðarvegi í Skagafirði. Í frétt á mbl.is segir að maðurinn hafi ekið á allt að 193 kílómetra hraða á klukkustund áður en hann missti stjórn á bifreiðinni og hún valt út af veginum. Farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða í slysinu.
Maðurinn var jafnframt sviptur ökuréttindum í tólf mánuði frá birtingu dómsins og gert að greiða farþeganum 3,5 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta og dráttarvaxta. Dómurinn féll í gær.
Slysið varð að kvöldi 11. apríl 2025, skammt sunnan við Hofsós en fjórir voru í bifreiðinni og slösuðust allir, ökumaðurinn og einn farþegi mjög alvarlega. Ökumaðurinn var tæplega átján ára þegar slysið varð.
„Leyfður hámarkshraði á veginum var 90 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt rannsókn lögreglu var raunhraði bifreiðarinnar á bilinu 180 til 193 kílómetrar á klukkustund rétt fyrir slysið. Við rannsókn á símum þeirra sem voru í bílnum fundust gögn úr Snapchat sem sýndu hraðamælinn í 190 kílómetrum á klukkustund.
Bifreiðin fór yfir á öfugan vegarhelming og út af veginum, þar sem hún valt þrjár til fjórar veltur á um 80 metra kafla. Hún stöðvaðist um 19 metra utan vegar,“ segir í frétt
Fram kemur í fréttinni að bíllinn hafi verið verið í svo slæmu ástandi að hann hefði ekki átt að vera í umferð. Mbl.is en nánar má lesa um málið þar >
