Álítur endurskoðun fjárhagsáætlunar tímasóun
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra í sveitastjórn Skagafjarðar óskaði bókað á fundi sveitastjórnar í gær að hann teldi endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 tímaeyðslu. Nær væri að beita sér fyrir aðgerðum sem gætu orðið til þess að endar næðu saman í rekstri sveitarfélagsins.
Segir Sigurjón í bókun sinni að upplýsingar úr bókhaldi sveitarfélagsins beri með sér að tap sveitarfélagsins á hverjum degi sé liðlega ein milljón króna. Segir Sigurjón að í stað þess að fara í hagræðingaraðgerðir sem hagræðingarnefnd á vegum sveitarfélagsins hafi lagt til hafi meirihlutinn staðið fyrir tugmilljóna útgjöldum sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun Skagafjarðar. .
: