Alls sáust 580 selir

Selir í afslöppun/Mynd: BG
Selir í afslöppun/Mynd: BG

Eins og komið hefur fram áður hjá Feyki, fór Selatalningin mikla fram í tíunda skipti 21. júlí síðastliðinn. Selasetur Íslands stjórnaði talningunni en vísindamenn í bland við sjálfboðaliða gengu um 100 km eftir strandlengju Vatnsness og Heggstaðarness. Alls tóku 57 sjálfboðaliðar þátt í talningunni, bæði innlendir og erlendir. Heildarfjöldi sela er sáust í talningunni voru 580. Frá þessu segir á huni.is.

Fjöldi sela þetta árið er meira en síðustu tvö ár en þó minna en árlegt meðaltal hefur gefið til kynna. Tilgangur talningarinnar er ekki einungis að fylgjast með fjölda og staðsetningu sela á þessu svæði heldur er þetta gott tækifæri fyrir almenning að fræðast um selarannsóknir með því að safna gögnum og fylgjast með vísindalegri vettvangsvinnu.

Að meðaltali hafa 760 selir verið taldir á ári í þau tíu ár sem talið hefur verið á svæðinu. Flestir selir sáust árin 2008 og 2009 en bæði árin fór talan yfir 1000. Fæstir selir sáust árið 2012 en þá voru þeir 422. Veðrið getur haft áhrif á sýnileika selanna því þeir kjósa helst að liggja á þurru, í heitu, sólríku veðri, lausir við vindinn. Í ár var ansi þokukennt og blautt, aðeins níu gráðu hiti og nokkuð hvasst og því hugsanlegt að sumir selirnir hafi frekar kosið að svamla um í sjónum en á skerum við landið.

Fleiri fréttir