Allt á fullu á Eldi 2011
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi var sett á Hvammstanga í gærkvöld en á dagskrá hátíðarinnar sem stendur fram á sunnudag er fjölbreytt úrval námskeiða og skemmtunar við allra hæfi.
Dagskrá dagsins í dag hófst strax klukkan tíu í morgun með leikjum á Mjólkurstöðvartúninu og núna klukkan eitt hófst dagskráin síðan aftur eftir hádegishlé með námskeiðum í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Í dag er boðið upp á förðunarnámskeið fyrir 12 ára og eldri en áætlað er að halda annað förðunarnámskeið á morgun föstudag. Þá verður haldið borðtennismót fyrir alla sem hefst klukkan 15:00 og síðan skotboltamót sem hefst klukkan 16 en skráning á bæði mótin fer fram á staðnum.
Kl. 18:00 eru svo dómarar hverfakeppninnar og gestir og gangandi boðnir velkomnir á mútusvæði hverfanna á Bangsatúni.
Kl. 21:00 hefst svo tónlistin. Þá verður kertaljósastemmning Melló Músíka í Félagsheimilinu á Hvammstanga og er þar 18 ára aldurstakmark þar sem bar verður á staðnum. Að því loknum, eða í kringum 23:00, stíga Djammdrengirnir á stokk og skapa skemmtilega djammstemmningu
Á morgun heldur síðan gleðin áfram en á morgun bera kannski hæst árlegir tónleikar í Borgarvirki en að þessu sinni mun Egill Ólafsson syngja í virkinu