Allt gengur vel í Köge

Arnar Halldórsson sérlegur fréttaritari 10. bekkjar Árskóla sem nú dvelur í Danmörku sendi okkur smá línu í gærkvöld. „Ferðin gengur vel, við erum búin að eiga góðan dag í vinabæ vorum Köge, fórum í ratleik um bæinn og keilu í keiluhöllinni með Dönunum sem taka á móti okkur.

Þegar þetta er skrifað stendur sameiginleg kvöldvaka sem hæst, dúndrandi diskótek. Okkar framlag til skemmtunarinnar var rappið og lokasöngurinn úr Latabæjarleikritinu.

Stóra Kaupmannahafnarferðin er á morgun, Hafmeyjan, Strikið, Tívolí og pulsa á Ráðhústorginu!“

Myndir frá ferðinni má sjá hér.

Fleiri fréttir