Allt í jafnvægi hjá yngri flokkunum um helgina

Þrír yngri flokkar hjá Tindastóli í körfu skruppu suður yfir heiðar um síðustu helgi og kepptu í 2. umferð Íslandsmótsins. Þetta voru 8. flokkur stúlkna, 8. flokkur drengja og 11. flokkur drengja. Stelpurnar í 8. flokki kepptu í Njarðvík í A-riðli. Þær eru ennþá án Lindu Þórdísar Róbertsdóttur sem verið hefur meidd í allt haust. Þær stigu þó vel upp að þessu sinni að sögn Hrafnhildar Sonju Kristjánsdóttur þjálfara og allt annað að sjá til þeirra en í fyrsta mótinu.  

 

Strákarnir í 8. flokki kepptu í E-riðli í Heiðarskóla í Keflavík á laugardag og í Ásgarði Garðabæ á sunnudag. Leikin var tvöföld umferð þriggja liða og unnu strákarnir tvo og töpuðu tveimur. Þeir töpuðu báðum leikjunum fyrri daginn, en kvittuðu fyrir töpin með öruggum sigrum seinni daginn.

Þá spilaði 11. flokkur í B-riðli í Smáranum í Kópavogi og voru þeir hársbreidd frá því að komast upp í A-riðil. Þeir unnu tvo og töpuðu tveimur naumlega. Því miður hefur stigaskor leikmanna ekki borist en verður sett inn um leið og það gerist.

Nánar um úrslit leikjanna er að finna á Tindastóll.is

Fleiri fréttir