Allt í plati á árshátíð Varmahlíðarskóla
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
24.03.2015
kl. 11.14
Árshátíð yngri bekkja s.l. laugardag tókst prýðilega, en þá var sýndur söngleikurinn Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson í leikstjórn Helgu Rósar Sigfúsdóttur. Að vanda var vel mætt og tókst frábærlega til með uppfærsluna.
Eins og áður var árshátíðin tekin upp og verður diskurinn til sölu hjá ritara skólans þegar vinnslu á honum er lokið. Skemmtilegt myndasafn frá árshátíðinni er að finna á heimasíðu skólans.