Allt í plati - þrjár sýningar eftir

Í kvöld og um helgina heldur Lína Langsokkur áfram að töfra fram persónur úr þekktum barnaleikritum á sviðið í Bifröst. Uppselt er í kvöld (4. nóv.) á sýningu númer 7 og hefst hún kl. 19.30. Lausir miðar eru á sýninguna á morgun og á allra seinustu sýningu á sunnudag, en báðar sýningarnar hefjast kl. 16.

 

Miðasala er í Kompunni hjá Herdísi, Aðalgötu 4 og í Bifröst 30 mínútum fyrir sýningu. Miðasölusími LS:  849-9434

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir