Alltaf not fyrir fleira fólk í björgunarsveitum

Björgunarsveitirnar þrjár í Skagafirði héldu um helgina hópslysaæfingu þar sem í fyrsta skipti var notast við neyðartjald sem Isavia gaf Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í sumar og staðsett er í Varmahlíð. Sett var á svið bílslys með sex slösuðum farþegum í tveimur bílum. Félagar úr Unglingadeildinni Trölla sáu um að leika sjúklinga og segir Ásta Birna Jónsdóttir, björgunarsveitarmaður, það mjög verðmætt fyrir björgunarsveitirnar að njóta aðstoðar þeirra á æfingum, enda gildi hið fornkveðna hvað ungur nemur gamall temur.
„Hluti björgunarmanna fór strax að sinna ,,sjúklingum” á meðan hinir fóru að setja upp tjaldið. Tjaldið er 35 fermetrar að stærð og því fylgir rafstöð, ljósabúnaður, loftdæla og hitablásari. Þessu er haganlega komið fyrir í kerru sem inniheldur einnig 30 ullarteppi og 15 sjúkrabörur,“ segir Ásta en einungis tók um 15 mínútur að tjalda tjaldinu sem kom það að góðum notum við að sinna ,,sjúklingunum” þar sem úti var 4 stiga frost en tjaldið er upphitað og með mildri lýsingu.
Hún segir að björgunarsveitirnar hafi alltaf not fyrir fleira fólk og vill koma á framfæri að það sé sérstakt nýliðakvöld í Sveinsbúð á fimmtudaginn kl. 20:00. Annars eru æfingar hjá sveitunum eins og hér segir:
Björgunarsveitin Grettir, Skólagötu Hofsósi. – mánud. kl. 19:30
Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð, - þriðjud. kl. 20:00
Björgunarsv. Skagfirðingasveit, Sveinsbúð Borgarröst 1, Sauðárkrókur – miðvikud. kl. 20:00.
Hér fyrir neðan eru myndir teknar frá æfingu helgarinnar af þeim Ástu Birnu Jónsdóttur og Elvari Má Jóhannssyni.