Alþjóðadagur RKÍ á Hvammstanga
Hvammstangadeild Rauða kross Íslands hefur í hyggju að halda alþjóðadag í marsmánuði og eru allir erlendir íbúar svæðisins hvattir til að setja sig í samband við deildina vegna þessa. Markmið dagsins er að kynnast menningu erlendra íbúa Húnaþings vestra, t.d. matargerð, tónlist, munum, ljósmyndum, kvikmyndum, handverki, leikjum, sögum, dans, fatnaði og hvað sem fólki dettur í hug.
Til þess að dagurinn heppnist sem best er mikilvægt að góð þátttaka verði. Efniskostnaður við matargerð verður kostaður af RKÍ Hvammstangadeild.
Áhugasamir hafi samband við Rakel eða Sæunni á póstfangið hvammstangadeild@gmail.com
/Norðanátt.is