Alþjóðleg skíðaráðstefna á Sauðárkróki

Þessa dagana fer fram alþjóðleg skíðaráðstefna á vegum NASAA (North Atlantic Ski Area Association) á Sauðárkróki. Er þetta í annað sinn sem slík ráðstefna er haldin á Íslandi og kom að þessu sinni í hlut skíðadeildar Tindastóls að hafa veg og vanda af skipulagningu hennar.

Þátttakendur á ráðstefnunni eru ríflega 40 manns frá fimm þjóðlöndum, þ.e. Austurríki, Ítalíu, Svíþjóð, Skotlandi og Íslandi. Tilgangur ráðstefnunnar er fyrst og fremst sá að deila og miðla upplýsingum á milli skíðasvæða með það að markmiði að efla þau og bæta.

Óformleg dagskrá ráðstefnunnar hófst sl. sunnudag en þá voru menn boðnir velkomnir að hætti Skagfirðinga með reiðtúr frá Sauðárkróki að Grettislaug á Reykjaströnd og fengu allir tækifæri á að skella sér í hina náttúrulegu og sögufrægu laug að útreið lokinni.

Formleg dagkrá stendur svo yfir dagana 8. og 9. ágúst en meðal atriða á fjölbreyttri dagskrá eru kynningar og umræður um skíðalyftur, uppbyggingu barnagarða, vindmyllur, aðgangsstýrikerfi, snjóframleiðslutæki og margt fleira.

Ráðstefnan fer fram á Mælifelli á Sauðárkróki og er öllum velkomið að líta við og hlýða á þau fróðlegu erindi sem þar verða flutt.

Fleiri fréttir