Alþjóðlegur bænadagur kvenna
Það fer að líða að hinum árlega alþjóðlega bænadegi kvenna sem haldinn er fyrsta föstudag í mars ár hvert. Þetta árið verður hann því föstudaginn 4. mars nk. í Melstaðarkirkju og eru allir velkomnir.
Að þessu sinni verður efni bænadagsins frá Chile í Suður-Ameríku og samanstendur af bænum, upplýsingum um landið, tónlist og myndum. Sérstakur undirbúningsfundur fyrir bænadaginn verður í dag kl. 20:30 í safnaðarheimili á Melstað.