Alvarlegt vinnuslys í Kjarnanum
Alvarlegt vinnuslys varð í Kjarnanum á Sauðárkróki seinni partinn í gær er lyftari féll ofan á mann sem var að vinna undir honum með þeim afleiðingum að maðurinn slasaðist alvarlega. Maðurinn sem fluttir var suður til Reykjavíkur gekkst undir aðgerð í nótt.
Að sögn Marteins Jónssonar, framkvæmdastjóra Kjarnans, er verið að vinna að rannsókn málsins í samvinnu við vinnueftirlit og lögreglu. „Starfsmönnum er eðlilega brugðið og er hugur okkar hjá Magnúsi Jóhannessyni og fjölskyldu hans,“ segir Marteinn.
Sigrún Fossberg Arnardóttir, eiginkona Magnúsar, og hann sjálfur, vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu sem hugsað hafa hlýlega til þeirra.