Alvöru Sushi-upplifun á Hólum

Ferðaþjónustan á Hólum mun bjóða upp á Alvöru Sushi-upplifun á veitingastaðnum Undir Byrðunni á Hólum, á morgun föstudaginn 28. október.

Að sögn Hildi Þóru rekstrarstjóra Ferðaþjónustunnar verður þar sköpuð hugguleg stemning þar sem gestir gera gætt sér á gómsætu sushi-réttum við kertaljós. Fyrir þá sem vilja framlengja huggulegheitin og dekra við sig fram á laugardag verða tilboð á gistingu á staðnum.

Húsið opnar kl. 19 og mun Hildur taka við borðapöntunum í s. 455 6333 og sömuleiðis Halldór kokkur í s. 455 6312

Fleiri fréttir