Amaba Dama​, Alchemia og Hemúllinn verða á Gærunni

Reggíhljómsveitin Amaba Dama​, hljómsveitin Alchemia og eins manns tölvupönkhljómsveitin Hemúllinn spila á Gærunni tónlistarhátíð á Sauðárkróki 13. – 15. ágúst. „Amaba Dama​ hefur verið að síðan 2011 en varð til í núverandi mynd vorið 2014. Þau gáfu út fyrsta lagið sitt, Hossa Hossa, um sumarið það ár og það tók íslensku þjóðina með trompi,“ segir í fréttatilkynningu.

Amaba Dama undirritaði plötusamning við útgáfufyrirtæki síðar um sumarið og kom fyrstu hljómplata hljómsveitarinnar út í nóvember. Hljómsveitin var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í hvorki meira né minna en sjö flokkum og í fimm flokkum til Hlustendaverðlaunanna. „Síðan plata þeirra kom út hafa þau verið að túra Ísland og alltaf fengið mjög góð viðbrögð. Við erum hrikalega spennt að taka á móti Amaba Dama á Gærunni í ár,“ segir í tilkynningu.

https://youtu.be/b-G8YdzUjK8

Hljómsveitin Alchemia​ var stofnuð árið 2007 af Birgi, Gabríel og Agli og tók sér smá tíma til að finna réttan trommara, en fundu að lokum Gotta árið 2010. Sveitin spilar einhverskonar metal/rock, en dettur í pönkið af og til. Alchemia hafa gefið út tvær plötur, fyrsta heitir „Alchemia“ og kom út 2011 og sú síðari sem ber nafnið „Insanity“ kom út 2014. Alchemia strákarnir hafa einu sinni áður komið á Gæruna og var það árið 2013 og það er okkur sönn ánægja að taka á móti þeim aftur í ár.“

https://youtu.be/-3JLefRMBWw

„Hemúllinn er einsmanns tölvupönkhljómsveit, hliðarsjálf Arnars Snæbergs Jónssonar. Í Hemúlnum sameinast frumstæðir tónar í bland við varfærna og ágenga samfélagsrýni og pólitíska texta. Helsta einkenni Hemúlsins er lífleg sviðsframkoma og mikið samspil með áhorfendum. Við erum spennt að heyra í Hemúlnum á sólóistakvöldinu okkar.“

https://youtu.be/yIXZPxbza8w

Gæruböndin sem búið var að kynna fyrir eru:

Lockerbie, VIO, Óskar Harðar,
Lára Rúnars, The Roulette, Axel Flóvent,
Dimma, Stafrænn Hákon,
Dalí, Bjartmar Guðlaugsson og Gillon.

Fleiri fréttir