Ámundakinn sækir um lóð á Freyjugötureit

Á fundi byggingar- og skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem haldinn var í morgun, var tekin fyrir umsókn frá Fasteignafélaginu Ámundakinn ehf. á Blönduósi um lóð fyrir nýbyggingu á svokölluðum Freyjugötureit.

Um er að ræða reit austan Freyjugötu á Sauðárkróki, með aðkomu frá Knarrarstíg. Áform félagsins eru að byggja um 1000 fermetra skrifstofuhús á einni hæð. Meðfylgjandi erindinu voru gögn sem gera grein fyrir byggingaráformunum. Samþykkt var á fundinum að óska eftir fundi með umsækjanda.

Fleiri fréttir