Andleg heilsa svipuð hjá flestum eftir hrun
Birtar hafa verið niðurstöður úr viðhorfskönnun fyrir Skagafjörð vegna rannasóknarinnar "Heilsa og líðan starfsfólks sveitarfélaga". Alls fengu 191 starfsmaður Skagafjarðar könnunina senda og voru með virkt netfang. Alls svöruðu 135 þeirra spurningalistanum að einhverju eð öllu leyti. Nettó svarhlutfall hjá Skagafirði er 70,7%.
Í skýrslunni koma fram meginniðurstöður rannsóknar á líðan, heilsu og starfstengdum viðhorfum starfsfólks Skagafjarðar sem framkvæmd var í apríl 2010.
Rannsóknin er hluti af stærra verkefni þar sem skoðuð eru líðan, heilsa og starfstengd viðhorf starfsfólks 20 sveitarfélaga á Íslandi á tímum efnahagsþrenginga. Um er að ræða langtíma rannsókn og er þessi áfangi sá fyrsti af þremur. Þau sveitarfélög sem taka þátt í rannsókninni eru: Akranes, Akureyri, Álftanes, Árborg, Borgarbyggð, Fjallabyggð, Fljótdalshérað, Garðabær, Grindavík, Hafnarfjörður, Hornafjörður, Hveragerði, Ísafjarðarbær, Kópavogur, Mosfellsbær, Norðurþing, Reykjanesbær, Seltjarnarnes, Skagafjörður og Vestmannaeyjar.
Rannsóknin er jafnframt liður í doktorsverkefni Hjördísar Sigursteinsdóttur í félagsfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinandi og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Vísindasiðanefnd hefur gefið leyfi fyrir rannsókninni.
Skýrsluna er að finna HÉR.