Andstaða við aukið sjókvíaeldi
Húni.is greinir frá því að aðalfundur Veiðifélags Víðidalsár sem haldinn var í vikunni sendi frá sér ályktun þar sem lýst er yfir andstöðu við aukið laxeldi í opnum sjókvíum bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum. Í ályktuninni er minnt á að Hafrannsóknarstofnum sé andsnúin stjórnlausu laxeldi í sjókvíum og telji það geta stórskaðað villta laxastofna landsins. Skorað er á umhverfisráðherra að sitja ekki hjá í þessu mikilvæga náttúruverndarmáli.
Ályktun Veiðifélags Víðidalsár um sjókvíaeldi:
Aðalfundur Veiðifélags Víðidalsár haldinn í Tjarnarbrekku 9. apríl 2018 mótmælir öllum hugmyndum um útgáfu eldisleyfa á norskum kynbættum laxi í opnum sjókvíum bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum. Fundurinn minnir á að Hafrannsóknarstofnun leggst gegn stjórnlausu laxeldi í sjókvíum í áhættumati sínu og telur að það geti stórskaðað villta laxastofna landsins. Þá bendir fundurinn á nálægð við verðmætar laxveiðiár allt í kringum landið og þau miklu náttúruverðmæti sem þar eru í húfi. Fundurinn átelur Skipulagsstofnun fyrir hringlandahátt svo sem í Ísafjarðardjúpi, þegar stofnunin dró til baka álit sitt nýverið þar sem stofnunin lagðist gegn fyrirhuguðu laxeldi. Fundurinn skorar á núverandi umhverfisráðherra Guðmund Inga Guðbrandsson, að sitja ekki hjá í þessu mikilvæga náttúruverndarmáli. Samþykkt samhljóða.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.