Annar fundur í kvöld hjá Leikfélaginu
Í kvöld verður annar fundur vegna haustverkefnis Leikfélags Sauðárkróks í Leikborg kl. 20:00. Fyrsti fundur var í gærkvöldi en á honum var frekar fámennt svo boðað var til annars fundar í kvöld.
Allir sem vilja vera með í haustverkefninu (barnaleikritinu Allt í plati í leikstjórn Írisar Baldvinsdóttur) og eru 16 ára eða eldri eru hvattir til að mæta í Leikborg í kvöld kl. 20:00, hvort sem menn vilja leika, sauma, mála eða taka að sér önnur verkefni.
Meðfylgjandi mynd er af þeim Árna Jónssyni og Agnesi Skúladóttur frá 17. júní árið 2003 en þá sýndi LS stytta útgáfu af Allt í plati. Árni og Agnes léku þar Karíus og Baktus og líka Hérastubb bakara og bakaradrenginn (sjá fleiri myndir HÉR