Árangursríkt samstarf Fornleifadeildar Byggðasafns og Byggðasögu Skagafjarðar
Undanfarin ár hefur Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga verið í góðu samstarfi við starfsmenn Byggðasögu Skagafjarðar um rannsóknir á fornbyggð í Skagafirði. Alls hafa yfir 40 staðir verið rannsakaði í tengslum við byggðasöguritunina og hefur sá fjöldi bætt miklu við þekkingu á skagfirskri byggðasögu og upphafi og gerð elstu byggðar í héraðinu.
Það á ekki síst við um inndali og fáfarnari svæði þar sem fornar minjar hafa síður orðið fyrir barðinu á tækni- og framkvæmdagleði nútímans. Samstarfið hefur verið á ýmsan hátt, bæði hafa farið fram fornleifakannanir á völdum stöðum, auk þess sem að Fornleifadeildin hefur séð um uppmælingar og tölvuteikningu minjastaða og kortagerð í þremur seinustu bindum Byggðasögunnar. Síðastliðið sumar fléttuðust á skemmtilegan hátt saman rannsóknir Byggðasafnsins á fornum kirkjustöðum í Skagafirði og samstarfið við Byggðasöguna þar sem að 11. aldar kirkjugarður kom óvænt í ljós á Bjarnastöðum í Kolbeinsdal þegar verið var að kanna þar ummerki elstu byggðar. Í könnunarskurði var komið niður á gröf konu sem þar hafði fengið hinsta leg nokkru áður en Heklugjóskan mikla féll 1104.
/Byggðasafn Skagfirðinga