Árbækur Ferðafélagsins komnar í hendur flestra KS félagsmanna

Nú fer að styttast í það að allir félagsmenn Kaupfélags Skagfirðinga séu komnir með eintök sín af Árbókum Ferðafélags Íslands í hendurnar. Eins og frá hefur verið sagt ákvað KS að færa öllum félagsmönnum sínum sérstaka viðhafnarútgáfu af bókunum þremur er fjalla um Skagafjörð.
Þeir Sveinn Sigfússon og Snorri Evertsson fengu það hlutverk að keyra um allt hérað og afhenda bækurnar í eigin persónu alls um 1070 pökkum sem hver inniheldur þrjár bækur. Þegar Feykir hitti þá tvo sögðust þeir vera á síðustu metrunum, aðeins örfáir eftir. Segjast þeir verkið hafa gengið vel og þeir reynt að koma bókunum í hendur allra, en ekki alltaf gengið. Fólk hefur iðulega brugðist vel við og sumir farið að brosa sem þeir hafi ekki gert í langan tíma, segir Snorri kíminn og bætir við að jafnvel hafi þeir fengið koss að launum.