Árekstur á Sauðárkróki

Árekstur varð á gatnamótum Hegrabrautar og Þverárfjallsvegar á Sauðárkróki fyrir skömmu. Rúta sem var að koma eftir Þverárfjallsvegi úr vestri og jepplingur sem ók Hegrabraut og var að beygja inn á Þverárfjallsveginn skullu saman. Engin hlaut alvarleg meiðsli við áreksturinn.

Þegar Feykir kom á vettvang voru lögreglumenn að rannsaka vettvanginn, en á meðfylgjandi myndum má sjá að bæði jepplingurinn og rútan hafa skemmst töluvert við óhappið.

Uppfært kl. 14:07:
Samkvæmt uppfærslu frá lögreglu urðu engin alvarlega meiðsli við áreksturinn en ökumaður jepplingsins leitaði læknis vegna minni háttar meiðsla.

arekstur (2)

Fleiri fréttir