Árlegt umhverfisverkefni að hefjast

Nú er að hefjast árlegt umhverfisverkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar. Af því tilefni verða Soroptimistasystur á ferðinni að skoða lóðir og umhverfi í dreifbýli og þéttbýli á næstunni og veldur það vonandi engu ónæði.


Þessir aðilar vilja hvetja íbúa til að bæta og fegra umhverfi sitt.
Ábendingar um staði sem væru vel til þess fallnir að hljóta viðurkenningu eru vel þegnar. Senda má ábendingar á netföngin: sirry@fnv.is eða kata@ssnv.is

Fleiri fréttir