Arnar Bjarki í knapakynningu
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
04.03.2014
kl. 11.17
Sunnanmaðurinn sem rekur ættir sínar í Skagafjörðinn, Arnar Bjarki Sigurðarson, er í knapakynningu í áttunda tölublaði Feykis sem út kom síðastliðinn fimmtudag. Arnar Bjarki er einn af þeim fjórum sem eru nýir inn í KS-deildina í ár og svara þeir spurningum í öðru hverju tölublaði Feykis næstu vikur.
Á móti eru kynningar á liðunum í Húnvetnsku liðakeppninni, og mun eitt þeirra verða kynnt í 9. tölublaði Feykis sem kemur út í þessari viku.