Árs afmæli verðlaunasundlaugar
Sundlaugin á Hofsósi hefur vakið landsathygli allt frá árinu 2007 þegar þær stöllur Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir tilkynntu um þessa höfðinglegu gjöf til sveitarfélagsins. Sundlaugin var síðan tekin í notkun 27. mars 2010 og verður því eins árs á sunnudaginn.
Sundlaugin hefur verið verðlaunuð fyrir frábæra hönnun og þykir upplifun að stinga sér til sunds og synda í átt til Drangeyjar líkt og í sjónum sé synt. Á sunnudag verður haldið upp á afmælið með því að bjóða upp á veitingar á opnunartíma laugarinnar sem verður opin frá 14: - 20 þennan dag. Þá verður sundgestur ársins valinn auk þess sem sveitarfélagið .ætlar að bjóða börnum í Skagafirði upp á rútuferð í sund. Farið verður frá Varmahlíð klukkan 13:10 og Húsi Frítímans á Sauðárkróki klukkan 13:30. Lagt verður af stað heim frá Hofsós klukkan 16:30 á sunnudag.
Þau börn sem hyggjast nýta sér þessa þjónustu eru beðin um að hafa samband við Ivano í síma 6604634.
Á laugardagskvöld verður forskot á sæluna en þá verður laugin opin frá 16:00 – 24:00