Árshátíð Léttfeta á föstudag
Hestamenn á stór Sauðárkrókssvæðinu ætla að bregða sér í glansgallann á föstudagskvöldið næsta og halda árshátíð sína með alveg magnaða skemmtidagskrá eins og skemmtinefndin orðar það. Takmarkaðir miðar eru í boði.
Skemmtunin fer fram í Tjarnarbæ, félagsheimili Léttfeta, en þangað var keyptur forláta bakarofn sem nú er verið að safna fyrir og ætla félagsmenn að elda matinn sjálfir og láta afraksturinn renna til kaupanna.
Í tilkynningu frá skemmtinefndinni segir að ótrúlega mögnuð skemmtiatriði verði á dagskrá. Heyrst hefur að veislustjórinn, Tryggvi Jónsson frá Dæli í Sæmundarhlíð, sé búinn að vinna hörðum höndum að því að finna allskonar vitleysu til að þruma yfir lýðinn og lekið hefur til fjölmiðla að hinn margfrægi Riddarakór muni stíga á stokk. Þá hefur heyrst að nýr dúett muni koma fram í fyrsta skiptið og að öllum líkindum fá hárin til að rísa á hvaða loðdýri sem er en þetta er aðeins brot af þeirri dagskrá sem í boði er. Geiri og Jói munu svo halda fólkinu í skagfirskri sveiflu fram á nótt.
Einungis 100 miðar eru í boði og panta verður miða fyrir kl. 20:00 í kvöld hjá Steinunni í síma 865 0945 og Daníel í síma 866 7447.