Árskóli móðurskóli Vinaliðaverkefnsins
feykir.is
Skagafjörður
21.11.2014
kl. 08.36
Árskóli varð í gær móðurskóli Vinaliðaverkefnisins þegar Óskar Björnsson, skólastjóri Árskóla og Herdís Á. Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, undirrituðu samning þess efnis.
Vinaliðaverkefnið er norskt að uppruna, það hefur á fáum árum náð mikilli útbreiðslu og er nú starfrækt í yfir 1000 skólum í Noregi. Verkefnið hefur verið starfrækt á Íslandi í 2 ár en um tuttugu grunnskólar víðs vegar um landið taka nú þátt í verkefninu og hafa margir aðrir skólar lýst yfir áhuga á því. Nú er komið að því að Árskóli taki alfarið við umsjón verkefnisins hérlendis.