Ársrit USVH komið út
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni
03.06.2026
kl. 08.01
Rakel Ósk Ólafsdóttir formaður USVH veitir Húna viðtöku frá þeim Guðmundi Hauki Sigurðssyni, Þorbjörgu Ingu Ásbjarnardóttur, Jónínu Sigurðardóttur og Karli Friðrikssyni. MYND AF HÚNA.IS
Fertugastiogsjöundi árgangur Húna, ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, er kominn út. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði.
