Ásgeir Trausti tilnefndur til Norrænu tónlistarverðlaunanna 2012
Platan Dýrð í dauðaþögn með Ásgeiri Trausta er tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna árið 2012 en tilnefningarnar voru kunngerðar í gær. Retro Stefson er einnig tilnefnd auk tíu annarra listamanna og hljómsveita frá öllum löndunum á Norðurlöndunum.
Í umsögn dómnefndar um Ásgeir Trausta segir að hann sé afar þroskaður tónlistarmaður þrátt fyrir ungan aldur. Þess má geta að Ásgeir Trausti er í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis, svokölluðu Jólablaði Feykis, sem kom út sl. fimmtudag.
Verðlaunin verða afhent 14. febrúar næstkomandi á norsku tónlistarhátíðinni By:Larm sem fram fer í Osló í Noregi. Fulltrúi Íslands í norrænu dómnefndinni er Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður.