Ást á internetinu af væntanlegri plötu Gillons
Platan Næturgárun er væntanleg í lok mánaðarins en hún er fyrsta plata Gísla Þórs Ólafssonar, sem notar flytjandanafnið Gillon. Hér að neðan má heyra þriðja kynningarlag plötunnar, Ást á internetinu, en áður hafa komið út lögin Blindaður af ást og Næturkossar.
Platan var tekin upp hjá Fúsa Ben í Stúdíó Benmen og Guðbrandur J. Guðbrandsson blés í trompetinn í laginu.
Hér er lagið Ást á internetinu.