Átak í götumerkingum
Til stendur að gera átak í götumerkingum á Sauðárkróki en gert var ráð fyrir því í síðustu fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Nú þegar er byrjað að setja upp merki í Sæmundarhlíðinni.
„Búið er að kaupa ógrynni af merkingum og eru þau komin í hús,“ sagði Jón Örn Berndsen, sviðstjóri Umhverfis- og tæknisviðs sveitarfélagsins aðspurður um málið.
Að sögn Jóns Arnar verða götumerkingarnar settar upp mjög fljótlega, jafnhliða öðrum verkefnum starfsmanna áhaldahússins. Þar eru þrír starfsmenn sem nú eru á fullu að „loka sumrinu“ eins og Jón Örn komst til orða og undirbúa bæinn fyrir veturinn, þ.e. að ganga frá tækjum, athuga með niðurföll og lagnir og þess háttar.