Átelur seinagang menntamálaráðherra

Sveitastjórn Skagafjarðar samþykkti samhljóða í gær bókun frá Sigurjóni Þórðarsyni, fulltrúa Frjálslyndra- og óháðra þar sem sveitastjórn átelur þann drátt sem orðið hefur á skipun í stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Ályktun sveitastjórnar; „Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar átelur þann drátt sem orðið hefur á skipun í stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Samkvæmt auglýsingu um starfið var gert ráð fyrir að nýr skólameistari tæki til starfa þann 1. ágúst síðastliðinn. Ljóst er að nú þann 23. ágúst þegar skólinn verður settur, hefur ekki verið gengið frá ráðningu nýs skólameistara og hlýtur það að bitna á allri skipulags vinnu, sem er nauðsynlegt til þess að skólastarf geti gengið hnökralaust fyrir sig."

Fleiri fréttir