Atvinnulífssýningin Lífsins gæði og gleði 2014
Sveitarfélagið Skagafjörður mun í samvinnu við Skagafjarðarhraðlestina, SSNV og ýmsa aðila standa fyrir atvinnulífssýningu á Sauðárkróki við upphaf Sæluviku, dagana 26. – 27. apríl nk. Samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum var sú ákvörðun tekin í kjölfarið á óformlegri könnun um tíðni atvinnulífssýninga þar sem mikill vilji kom fram um að halda sýningarnar á 2ja ára fresti en fyrri sýningar voru haldnar árin 2010 og 2012.
Skipulag sýningarinnar verður í stórum dráttum með sama sniði og var á fyrri sýningum sem haldnar voru undir sömu yfirskrift. Sýningin verður opin frá kl. 10-17 á laugardegi og 10-16 á sunnudegi.
„Heimilt er að selja vörur á sýningunni. Svið verður á sýningarsvæðinu og skemmtiatriði velkomin! Við hvetjum fyrirtæki, félög, stofnanir og aðra sem hafa vöru, þjónustu, hugmynd eða eitthvað annað sem viðkomandi vill koma á framfæri til að taka þátt í sýningunni. Verði bása verður sem fyrr stillt í hóf,“ segir í tilkynningunni.
Sýningin verður sem fyrr öllum opin og aðgangur að henni ókeypis en sýningunni er einkum ætlað að draga fram þann fjölbreytileika sem er í atvinnulífi, félagastarfsemi og menningarlífi í Skagafirði, vekja jákvæða athygli á Skagafirði í fjölmiðlum, kynna sprota í nýsköpun og atvinnulífi og tengja enn betur saman íbúa og atvinnulíf.
Stefnt er að því að samhliða sýningunni fari fram málþing um atvinnumál, menningarmál og þjónustu við íbúa í Skagafirði. Þá verður Sæluvika Skagfirðinga 2014 sett á sýningunni á sunnudeginum.