Auglýst eftir styrkumsóknum í Húnasjóð

Á vef Húnaþings vestra er auglýst eftir styrkumsóknum úr Húnasjóði vegna ársins 2012. Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur til að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga.

„Ásgeir stofnaði og rak Alþýðuskóla Húnvetninga á Hvammstanga árin 1913-1920.  Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni.  Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Samkvæmt úthlutunarreglum Húnasjóðs geta eftirtaldir fengið fullan styrk úr sjóðnum:

  • Þeir sem stunda nám á háskólastigi þó ekki v/masters eða doktorsnáms.
  • Þeir sem stunda fagnám til starfsréttinda sem ekki eru á samningi við vinnuveitanda í starfsgrein sinni.
  • Háskólanemar- og nemar í fagnámi þurfa að vera á síðasta námsári eða að hafa lokið námi sínu til að geta fengið styrk.

Húnasjóður veitir einnig styrki vegna námskeiða ef talið er að þau styrki viðkomandi í starfi. Þó fæst ekki styrkur ef viðkomandi er styrktur af vinnuveitanda sínum. Styrkur vegna námskeiða er ekki greiddur út nema við framlagningu reikninga um kostnað viðkomandi námskeiðs.

Umsækjandi getur einungis fengið styrk einu sinni úr sjóðnum.

Senda skal inn skriflega umsókn um styrk vegna ársins 2012 ásamt lýsingu á námi á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á skrifstofu sveitarfélagsins eða vef Húnaþings vestra. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 11. júlí 2012.


Fleiri fréttir