Auglýst eftir verkefnastjóra hjá veitu- og framkvæmdasviði

Staða verkefnastjóra hjá veitu- og framkvæmdasviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar er laus til umsóknar. Verkefnastjóri hefur umsjón með daglegum rekstri Þjónustumiðstöðvar Skagafjarðar sem og rekstri fráveitu.

Verkefnastjóri sér einnig um mannahald, skipulagningu verkefna, gerir áætlanir fyrir starfsemina og gerir tillögur að fjárhagsáætlun Þjónustumiðstöðvar í samráði við sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs.

Verkefnastjóri tekur jafnframt þátt í undirbúningi og framkvæmd verkefna og hefur yfirumsjón með bifreiðum og tækjum sveitarfélagsins.

Hæfniskröfur:

  • Mikið frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Reynsla af verkstjórn og verklegum framkvæmdum.
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Reynsla af gerð fjárhags-, kostnaðar – og verkáætlana.

Laun og launakjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Umsóknarfrestur rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 4. apríl nk.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrr störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins; skagafjordur.is/störf í boði. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfum starfsins þegar ákvörðum hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar Indriði Þór Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, indridi@skagafjordur.is.

Fleiri fréttir