Auglýst verður eftir veiðimönnum
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóra verði falið að auglýsa eftir veiðimönnum til að annast refa- og minkaveiðar í sveitarfélaginu frá 2011 - 2014. Miðað verði við sömu svæðaskiptingu og verið hefur sl. ár með þeirri undantekningu að veiðisvæði milli Miðfjarðar og Víðidals taki mið af eldri sveitarfélagamörkum en greni í landi Stóra-Hvarfs við Bjarnafoss tilheyri veiðisvæði Miðfjarðar.
Grenjavinnsla/refaveiði:
Samkvæmt afgreiðslu ráðsins skal greiða fasta fjárhæð fyrir hvert unnið grendýr bæði fullorðin dýr og yrðlinga kr. 14.500- auk vsk. Greiðsla þessi er vegna grenjaleitar á þekktum grenjum, verðlauna fyrir hvert unnið dýr, vinnulauna og aksturs. Taka skal fram að einungis ráðnum veiðimönnum er heimilt að stunda veiðar á ref á grenjatíma. Eftir 1. maí 2011 verða ekki greidd verðlaun fyrir refi veidda utan grenjatíma.
Minkaveiði:
Landbúnaðarráð legur til að greiðsla fyrir minkaveiði verði sem hér segir:
- 1. Fyrir akstur skal greiða kr. 60- pr. km.
- 2. Fyrir leit skal greitt tímakaup kr. 1.100- auk. vsk. pr. klst.
- 3. Fyrir hvert unnið dýr skal greiða kr. 3.500-
- Verðlaun fyrir veiddan mink eru einungis greidd ráðnum veiðimönnum.
Þrátt fyrir ofangreint er landbúnaðarráði heimilt að semja við ráðna veiðimenn um breytt fyrirkomulag minkaveiða á einstökum svæðum.