Augnablik þvældist ekki fyrir Stólunum nema rétt í eitt augnablik
Lið Tindastóls í 1. deild karla í körfubolta vann öruggan sigur á liði Augnabliks í Kórnum í Kópavogi á föstudagskvöldið. Staðan í hálfleik var 37-62 en í leikslok 67-116 og eru Stólarnir því enn sem fyrr efstir í 1. deildinni.
Stólarnir náðu strax yfirhöndinni í leiknum en heimamenn voru þó bara þremur stigum undir þegar ríflega fjórar mínútur voru liðnar, 12-15, en þá gáfu gestirnir í og voru komnir með 19 stiga forystu að loknum fyrsta leikhluta, 18-37. Leikurinn var jafnari í öðrum og þriðja leikhluta en Stólarnir engu að síðar sterkari allan leikinn. Þrjátíu stigum munaði á liðunum þegar fjórði leikhluti hófst, 52-82, en síðustu mínúturnar keyrðu Stólarnir yfir heimamenn og unnu 49 stiga sigur.
Helgi Rafn, Proctor og Pétur voru góðir í leiknum en annars voru flestir leikmenn liðsins að spila vel og sýndu ungu leikmennirnir margir góðan leik eins og sjá má á tölfræðisíðu KKÍ.
Á morgun leika Stólarnir við Fjölni í Grafarvogi í átta liða úrslitum í Lýsingarbikar KKÍ og fer leikurinn fram í Dalhúsi kl. 19:15. Fjölnismenn hafa átt ágætu láni að fagna í síðustu leikjum og því alveg nauðsynlegt að stuðningsmenn Stólanna fjölmenni og hjálpi strákunum í fjögurra liða úrslitin.
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 24, Proctor 18, Pétur 17, Flake 14, Hannes Ingi 12, Sigurður Páll 7, Viðar 7, Helgi Margeirs 7, Ingimar 6 og Ingvi Rafn 4.