Aukasýning í Bifröst á morgun
Nú þegar er uppselt á allar fjórar árshátíðarsýningar 5. – 7. bekkjar Árskóla sem haldnar verða í Bifröst í dag og á morgun. Því hefur verið gripið til þess ráðs að hafa auka sýningu á morgun klukkan 14:00.
Þema sýningarinnar í ár er Stjörnur og má því búast við stjörnuryki á fjölunum enda hafa krakkarnir æft að kappi sl. vikur. Miðaverð er krónur 1500 fyrir fullorðna, 1000 fyrir börn á grunnskólaaldri og 500 fyrir leikskólabörn.