Bæjar- og sveitarstjórar landsins heimsækja Skagafjörð
Ársfundur bæjar- og sveitarstjórnarmanna fer fram í Skagafirði um þessar mundir. Þeir hafa farið víða um fjörðinn síðastliðna tvo daga og munu enda dagskránna með hátíðarkvöldverði í Menningarhúsinu Miðgarði í kvöld.
Um er að ræða árlegan fund stærri bæjar- og sveitarfélaga en hugmyndin er að koma saman, læra af hvoru öðru og styrkja böndin á milli staðana. Þá skipuleggur gestgjafa sveitar- eða bæjarfélagið kynnisferðir sem þykja einstök fyrir viðkomandi samfélag.
Þetta árið var komið að Sveitarfélaginu Skagafirði að halda fundinn sem upphaflega átti að vera í vor en þurfti að fresta vegna eldgossins í Grímsvötnum. Dagskráin hefur staðið yfir síðastliðna tvo daga og var þátttakan góð á meðal bæjar- og sveitarstjóra sem voru 22 talsins, auk maka.
Víða komið við í þéttskipaðri dagskrá
Í gær heimsóttu þeir Flokku ehf., sem þykir framarlega á sínu sviði og vakti starfsemin mikla hrifningu viðstaddra, að sögn Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra Skagafjarðar.
„Á meðan fóru makar þeirra í skoðunarferð um gamla bæinn þar sem Unnar var með leiðsögn. Þar næst skoðuðu þau Minjahúsið og fengu sér kaffi og bakkelsi hjá Róbert í Sauðárkróksbakaríi. Loks fóru þau í Sauðárkrókskirkju þar sem Ásdís Guðmundsdóttir söngkona tók lagið,“ sagði Ásta. „Á meðan vorum við hin í ruslinu,“ bætti hún við og hló.
Hópurinn heimsótti Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, þar sem Ingileif Oddsdóttir skólameistari og Þorkell Þorsteinsson aðstoðarskólameistari tóku á móti þeim og kynnti stafsemina sem þar fer fram. Þau fengu leiðsögn um verknámshús skólans, sem Ingileif sagði vera „það besta á landinu.“
Að sögn Ástu var farið víða um fjörðinn og reynt að hafa dagskránna sem fjölbreyttasta, „það er því miður ekki hægt að skoða allt en reynt er að velja það sem er einstakt hér í héraði.“
Þau heimsóttu einnig Steinullarverksmiðjuna, Skotsvæði Ósmanns, hátæknifjósið á Garðakoti og Sundlaugina á Hofsósi. Einnig var farið á Hóla þar sem Bjórsetrið og Sögusetur íslenska hestsins var skoðað. Jafnframt fengu þau kynningu á kræsingum úr Matarkistu Skagafjarðar.