Bændadagar í Skagfirðingabúð
Skagfirskir Bændadagar hófust í dag í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki og er þar hægt að gera reyfarakaup á úrvals matvælum úr skagfirsku hráefni. Bændur munu bjóða gestum að smakka á fjölbreyttum vörum úr þeirra framleiðslu milli klukkan 14 og 18, í dag og á morgun.
Meistarakokkurinn Árni Þ. Arnórsson ætlar að töfra fram dýrindis rétti og láta bragðlauka gesta titra af ánægju en gefin hefur verið út uppskriftabæklingur með girnilegum uppskriftum hans . Að sögn Árna Kristinssonar verslunarstjóra má búast við fjölda gesta þessa tvo daga sem tilboðin standa enda margir sem birgja sig upp fyrir veturinn. Sem dæmi nefnir Árni að í fyrra hafi farið um 17 tonn af kjöti og 5 tonn af osti farið í körfur gestanna.
Auk alls matarins verður margt annað á boðstólnum í búðinni þar sem ýmis tilboð verða í gangi s.s. eins og á raftækjum, skóm og lopa svo eitthvað sé nefnt.
Látum hér eina uppskrift fylgja af Lambafille.
Lambafille – Mojito
- 2 lambahryggvöðvi (fille)
- 1 búnt mynta
- 2 lime
- 1 pakki Panko rasp
- 2-3 msk. Dijon sinnep
Setjið smjör og olíu til helminga á heita pönnu. Brúnið lambavöðvann á hefðbundinn hátt, saltið og piprið eftir smekk. Bakið í ofni við 180°C í 2-3 mín. og látið hvíla í svipaðan tíma u.þ.b. tvisvar til þrisvar.
Saxið myntuna fínt niður, raspið börk af lime og blandið saman. Blandið hæfilegu magni af raspi saman við. Smyrjið kjötið með sinnepinu þegar það er tilbúið og veltið upp úr mojito raspi.
Kartöflusalat
- 5 bökunarkartöflur
- 1 dl. ólífuolía
- 1 rauð paprika
- 1 græn paprika
- 1gul paprika
- 1 búnt flöt steinselja
Sjóðið kartöflurnar með hýðinu, skrælið og skerið niður í teninga. Hellið olíunni saman við. Grillið paprikurnar við 200°C og flettið skinninu af. Skerið þær svo niður í ræmur og blandið saman við kartöflurnar. Kryddið með saxaðri steinselju og salti.