Bændafundir Kjötafurðastöðvar KS og SKVH

Kjötafurðarstöð KS og Sláturhús KVH hafa boðað til bændafunda víða á norður- og vesturlandinu og allt til Ísafjarðar um málefni afurðastöðvanna. Tilgangur þessara funda er að upplýsa bændur um stöðu mála er varða afurðir þeirra.

Ágúst Andrésson forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS segir að farið verði yfir horfur á mörkuðum innanlands sem utan, birgðastöðu, fyrirkomulag slátrunar, niðurjöfnunar og heimtöku. Þá verða tækifæri og ógnanir í landbúnaði og úrvinnslu landbúnaðarafurða og markaðssetningu þeirra einnig á dagskrá.

-Fundirnir verða með því sniði að við erum með smá framsögu og síðan svörum við fyrirspurnum og ábendingum frá bændum. Það má segja það að mikilvægasta við þessa fundi sé að fá fram umræður um það sem vel er gert og hvað má betur fara, segir Ágúst og bætir við að stefnt sé á að vera með fund á Egilstöðum 23. apríl og á Sauðárkróki þriðjudaginn 24. apríl í Selinu en það komi í ljós síðar.

Fundirnir verða sem hér segir:

  • 16. apríl kl. 12:00 að Staðarflöt í Hrútafirði
  • 16. apríl kl. 20:00 að Valfelli í Borgarfirði
  • 17. apríl kl. 12:00 að Brjánslæk
  • 17. apríl kl. 16:00 að Bjarkalundi
  • 17. apríl kl. 20:00 að Leifsbúð í Búðardal
  • 20. apríl kl. 12:00 að Hótel Ísafirði

Fleiri fréttir