Bændahátíð 20 ágúst

SveitaSæla

Á heimasíðu Skagafjarðar kemur fram að skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði þann 20. ágúst nk.

Í upplýsingum um hátíðina segir; „Þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyrir augu manna. Má þar nefna sveitamarkað, vélasýningu skagfirskra bænda og vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir börn, kynningu á fyrirtækjum tengdum landbúnaði og margt fleira.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í SveitaSælu er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra hátíðarinnar Eyþór Jónasson í síma 842 5240 eða senda póst á svadastadir@simnet.is

Verðskráin:

Sveitamarkaður / handverksmarkaður kr. 5.000.- borðið er 70x280 cm.

Sýningarsvæði á gólfi kr. 6.000.- fermetrinn með rafmagni og netsambandi.

Útisvæði kr. 300.- fermetrinn

Ath. öll verð eru fyrir utan vsk.“

Fleiri fréttir