Bændur alltaf að ná betri tökum á ræktuninni

Aðalfundur Þreskis ehf. og Kornræktarfélags Skagafjarðar voru haldnir á Löngumýri miðvikudaginn 12. mars. Á aðalfundi Þreskis kom m.a. fram að kornrækt í Skagafirði hefur dregist verulega saman síðustu ár eftir mikinn uppgang uppúr síðustu aldamótum.

Þórarinn Leifsson situr í stjórn Þreskis og segir hann í Feyki að rekja megi samdráttinn til þess að við fall krónunnar hækkuðu öll aðföng vegna ræktunarinnar, fræ, áburður,  eldsneyti, þresking, sýring  og þurrkun. Ræktunin verður því áhættusamari og má ekki við miklum áföllum.

Þá hefur gríðarlegur ágangur álfta og gæsa bæði vor og haust gert bændum erfitt fyrir að vera með kornakra fjarri bújörðum sínum þar sem erfitt er að hafa eftirlit með ökrunum og koma við vörnum. „Það gleðilega er að þeir bændur sem eru ennþá í kornrækt eru alltaf að ná betri tökum á ræktuninni og þrátt fyrir að síðasta ár hafi ekki verið hagstætt til kornræktar þá náðu flestir bændur allgóðri uppskeru,“ bætir hann við.

Á aðalfundi Þreskis var farið yfir rekstur félagsins á síðasta ári. Þresktir voru 266 ha af korni og í Vallhólma voru þurrkuð 60 tonn af korni. Heildarvelta félagsins á síðasta ári var liðlega 10 milljónir. Fjallað er um aðalfund Þreskis og Kornræktarfélags Skagafjarðar í nýjasta tölublaði Feykis.

 

Fleiri fréttir