Bændur fá uppbót
Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki og Sláturhús KVH á Hvammstanga hafa ákveðið að greiða öllum innleggjendum 2,15% uppbót fyrir innlegg síðasta árs en alls nemur upphæðin 39 milljónir króna. Uppbótin verður greidd út á næstu dögum til þeirra sem lögðu inn sauðfé, nautgripi og hross á árinu.
Ágúst Andrésson, forstöðumaður Afurðastöðvar KS segir í Bændablaðinu að þessi ákvörðun sé tekin í kjölfar góðs rekstrar á síðasta ári.
„Það er jákvæð afkoma og hagræðing í rekstri sem gerir okkur kleift að greiða bændum uppbót fyrir innlegg síðasta árs. Útflutningur hefur skilað góðum tekjum en aðalástæðan er sú hagkvæmni sem félögin hafa náð fram í krafti stærðar sinnar að undanförnu," sagði Ágúst í viðtali við Bændablaðið.
Þá hafa þessi sláturhús ákveðið að hækka verð á heimtöku upp í 100 kr/kg og tók sú ákvörðun gildi 1. mars. sl. samkvæmt vef Landsambands kúabænda.