Baldur og Aðalsteinn leiða Íslandsmótið
Fjórða umferð í Íslandsmótinu í rallý fer fram þann 26. september næstkomandi. Hefst keppnin hjá Geysi í Haukadal klukkan 10:00 og haldið verður upp á Skjaldbreiðarveg. Nokkur ár eru síðan ekið hefur verið um þennan línuveg og er ljóst að tilhlökkun er mikil meðal keppenda að spreyta sig á henni. Er þessi sérleið um 42 km löng og telst lengsta rallýleið sumarsins. Mun hún reyna á úthald og einbeitingu áhafna sem og ástand bifreiða.
Síðan færist keppnin nær Borgfirðingum en ekið verður yfir Uxahryggi eftir að komið er út við Kaldadalsveg. Uxahryggir eru ökumönnum vel kunnug því hún hefur verið ekin að jafnaði einu sinni á sumri undanfarin ár. Þegar komið er niður af Uxahryggjum munu áhafnirnar snúa við og aka báðar sérleiðirnar til baka.
Að akstri loknum halda keppendur niður að Korputorgi þar sem úrslit verða tilkynnt klukkan 16:30 en þar verður einnig rallýsýning hjá Planinu í tilefni þess að í ár eru 40 ár síðan fyrsta rallýkeppnin var haldin hérlendis. Er sýningin opin laugardag og sunnudag, aðgangur ókeypis.
Að þessu sinni eru 13 áhafnir skráðar til leiks, má þar sjá bæði nýliða sem og þaulreyndar áhafnir. Skagfirðingurinn Baldur Haraldsson og Borgfirðingurinn Aðalsteinn Símonarson leiða nú Íslandsmótið með tæplega 15 stiga forskoti á Daníel Sigurðsson og Ástu Sigurðardóttur. Þeir mæta galvaskir til leiks en þau systkin verða fjarri góðu gamni á laugardaginn.
Fjölskyldutengsl eru heilmörg meðal áhafna en feðgarnir Magnús Smári Ragnarsson og Ragnar Magnússon munu spreyta sig en einnig verða feðgarnir Arnkell Arason og Ari Arnórsson. Ein feðgin mæta einnig til leiks, þau Þórður Bragason og Ingibjörg Þórðardóttir sem og ein hjón, þau Ólafur Þór Ólafsson og Tinna Rós Vilhjálmsdóttir.
/fréttatilkynning