BaliButik með pop-up verslun á morgun

BaliButik verður með pop-up verslun á Kaupvangstorgi 1 (skáhallt á móti B.Har) á Sauðárkróki á morgun, þriðjudaginn 28. júlí kl. 12-18. Pop-up verslun þýðir að hún verður aðeins opin í einn dag. Til sölu verður handsaumaður kven- og barnafatnaður, skartgripir og gjafavörur frá Balí.

Verslunina rekur Tobba Marinósdóttir fjölmiðlakona en hún hefur sterka tengingingu við Sauðárkrók. "Pabbi minn er fæddur og uppalinn á Fjósum í Svartádal og systur hans tvær búa í Skagafirði. Ég hef því dvalið töluvert á Króknum og fannst tilvalið að nota tækifærið og heimsækja skyldmenni mín og vera um leið með pop-up verslun í einn dag. Við vorum með pop-up verslun í Reykjavík fyrir stuttu og það var brjálað að gera. Mér fannst tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi, koma með fjölskylduna í heimsókn norður og bjóða upp á þessar litríku dásamlegu vörur í leiðinni!"

Tobba lofar litríkri stemmingu og mun bjóða upp á léttar veitngar og gott verð.
Í boði verður enn meira vöruúrval en er að finna á vefsíðunni balibutik.is.
Léttar veitingar og litrík stemming!

Meðfylgjandi eru myndir af fatnaðinum.

/fréttatilkynning

Fleiri fréttir